Viskíverksmiðjur: Linkwood

Svæði: Speyside Framleiðsla: 5.6 milljónir lítra Eigandi: Diageo Stofnað: 1821 Framburður: Linkwúd Langmest af framleiðslu Linkwood er blandað enda vel til þess fallið. Megnið fer í Johnnie Walker og White Horse. Eini einmöltungurinn sem er vanalega fáanlegur er 12 ára úr Flora&Fauna línunni. Blómlegt, grösugt, létt.