Svæði: Hálönd
Framleiðsla: 3.340.000 lítrar
Eigandi: John Dewar&Sons
Stofnað: 1960
Framburður: Makkdöff
Það eru engir einmöltungar til undir heitinu Macduff og er stór hluti framleiðslunnar settur í William Lawson’s blönduna. Sé eitthvað átappað sem einmöltungur er það gert undir nafninu The Deveron sem er mjög létt viskí, með smá epla og toffíkeim. Ekki að besta sem er á markaðnum eða flóknasta en fæst á ágætis verði.