Svæði: Speyside
Framleiðsla: 4.2 milljónir lítra
Eigandi: Chivas Brothers
Stofnað: 1897
Framburður: Glentokkers
Megnið af framleiðslu Glentauchers fer í Ballantine’s og Teacher’s blöndurnar og eru einmöltungar því frekar fátíðir. Þeir sem eru fáanlegir eru vanalega átappaðir af Gordon&McPhail fyrirtækinu og oftast kringum 20 ára sem er verulega gott og ávaxtaríkt, á góðu verði og vel þess virði að prófa.