Svæði: Speyside
Framleiðsla: 5.7 milljónir lítra
Eigandi: La Martiniquaise
Stofnað: 1897
Framburður: Glen Mörrei
Megnið af framleiðslu Glen Moray fer í blandað viskí sem heitir Label 5. Vegur Glen Moray sem einmöltungs hefur legið snarlega upp á við undanfarin ár og er eitt mest selda single malt í Bretlandi í dag. Það er aðgengilegt, auðdrekkanlegt og með ódýrari einmöltungum á markaðnum, sem að miklu leyti útskýrir vinsældir þess.